GÓMSÆTAR GJAFIR Í HÖLLINNI

KOMDU Í HÖLLINA OG EIGUM SAMAN NOTALEGA STUND ÞAR SEM VIÐ BÚUM TIL FALLEGAR OG GÓMSÆTAR GJAFIR, SMÖKKUM, SPJÖLLUM OG NJÓTUM

ÖRFÁAR DAGSSETNINGAR Í BOÐI  - EKKI MISSA AF ÞESSU

Já – ég er sko til í það
 

Hvað gerum við í höllinni?

Við ætlum að búa til, smakka, pakka og njóta saman.

Á þessu 2-3 klst námskeið sýni ég þér hvernig þú getur búið til fallegar sælkeragjafir sem líta út eins og þær komi úr lítilli sælkerabúð.

  • Ég sýni þér hvernig ég útbý 3-5 mismunandi sælkeragjafir
  • Deili með þér mínum bestu ráðum og trixum.
  • Sýni þér hvernig einfaldar umbúðir geta gert gjöfina extra fallega, án þess að það þurfi að kosta hálfan handlegg.
  • Þú færð pdf -uppskriftabækling með uppskriftum sem við vinnum með og  fleiri gómsætum hugmyndum. 
  • Þú færð pdf með fallegum merkimiðum sem þú getur prentað út til að merkja gjafirnar þínar, ár eftir ár.

Ég lofa dásamlegri stund, sniðugum ráðum og fallegum gómsætum gjöfum.

 

Þú þarft ekki að mæta tómhent í jólaboðið aftur. Það þarf hvorki að vera flókið né dýrt að gefa fallega gjöf.

Á einni notarlegri stund í Höllinni færðu hugmyndir, uppskriftir og einföld tri sem þú getur notað aftur og aftur þegar þig langar að gleðja einhvern með einhverju sem þú bjóst til sjálf.

Og það esta! Gjöfin getur litið út eins og hún komi úr lítilli sælkerabúð - án þess að kosta hálfan handlegg.

 

Já – mig langar að læra að gera svona gjafir

ÞETTA NÁMSKEIРER FYRIR ÞIG EF...  

  • Þig langar að læra að gera fallegar og gómsætar gjafir án þess að flækja hlutina
  • Þú elskar að gefa eitthvað sem þú hefur búið til sjálf.
  • Þig langar í nýjar hugmyndir að gjöfum sem kosta ekki formúgu en líta samt geggjað út.
  • Þú hefur gaman af fallegum umbúðum, merkimiðum og litlum smáatrium.
  • Þig langar einfaldlega að gera eitthvað nýtt og skemmtilegt með þínum vinahópi í fallegu umhverfi.

Þú þarft hvorki að vera snillingur í eldhúysinu né mikill föndrari - ég sýni þér þetta allt.

Já - Þetta er klárlega fyrir mig
Já ég er tilbúin(n) að skrá mig

Veldu þína stund í Höllinni

Miðvikudagur 28. október kl. 19:00-22:00

Hámark 10 manns

Fimmtudagur 29. október kl. 17:00-20:00

Snemmskráningarverð aðeins 14.900.-

Fullt verð 16.900.-

Kennsla, hráefni, smakk, 3-5 gjafir sem þú ferð með heim, uppskriftabæklingur og merkimiðar innifalið.

ATH, lágmarksfjöldi á hvert námskeið er 6 manns, ef það næst ekki verður námskeiðsgjaldið endurgreitt að fullu.

Ég er Dísa.

Ég er Dísa,

Ég elska að skapa – hvort sem það er í eldhúsinu, á vinnustofunni eða úr einhverju sem aðrir hefðu kannski hent.

Ég er menntaður matartæknir og hef unnið við mat og veitingarekstur í mörg ár, en það sem mér finnst allra skemmtilegast er að deila hugmyndum sem eru einfaldar, fallegar og hægt að gera sjálfur.

Gómsætar gjafir urðu til úr þessari ástríðu minni: að taka eitthvað tiltölulega einfalt, gera það ótrúlega gott, pakka því fallega inn og breyta því í gjöf sem gleður.

Og nú langar mig að bjóða þér heim til mín í Höllina.

Við ætlum að búa til, smakka, spjalla og dúlla okkur saman – og vonandi ferð þú heim full af hugmyndum og með smá löngun til að gefa öllum eitthvað heimagert. ❤️

Veldu þína stund í Höllinni

Næstu dagssetningar 

Miðvikudagur 28. október kl. 19:00-22:00

Fimmtudagur 29. október kl. 17:00-20:00

Snemmskráningarverð 14.900.-

Fullt verð 16.900.-

Kennsla, hráefni, smakk, 3-5 gjafir sem þú ferð með heim, uppskriftabæklingur og merkimiðar innifalið.