Skjaldarvíkur hjörtun

 

Í þessari vef-bók eru 14 tegundir af hjörtum með enskum texta. Svona hjörtu eru búin að vera í sölu í mörg ár í Skjaldarvík ferðaþjónustu, en grafíkin hefur aldrei áður verið til sölu.

Það sem m.a. er hægt að gera með þetta er eftirfarandi:

  • Efnishjörtu, fyllt með tróði
  • Pappírshjörtu fyllt með tróði
  • Hjartalaga pappírs kort
  • Grafík til að setja í ramma
 
Smelltu hér til að kaupa bókina

Hver er Dísa?

Ég heiti Bryndís, alltaf kölluð Dísa.

Síðan 2010 hef ég rekið ferðaþjónustu í Skjaldarvík rétt við Akureyri. Á þessum tíma hef ég lært margt nýtt, hvað varða mat, nýtni, umhverfið og gesti.

Ég hef frá unga aldri haft gríðalegan áhuga á mat og sköpun og er bæði menntaður grafískur hönnuður og matartæknir. Ég elska að skapa, gefa gömlum hlutum nýtt líf, búa til góðan mat og bera hann fram á fallegan og frumlegan hátt og gleðja fólkið í kring um mig.

Ég fæ endalausar spurningar alla daga um hvernig ég geri hitt og þetta og að geta deilt mínum hugmyndum eða lærdómi finnst mér algerlega magnað því eitt af því skemmtilegasta sem ég geri er að læra eitthvað nýtt sjálf.

Ég hlakka mikið til að geta kennt þér eitthvað skemmtilegt og nýtt. 

Placeholder Image
Powered by Kajabi