Finnst þér gaman að skapa? En vantar stundum hugmyndir?
-
Þá er Úr geymslu í gersemi klúbburinn fullkominn fyrir þig.
-
Um leið og þú hefur skráð þig í klúbbinn færð þú aðgang að öllu efni Úr geymslu í gersemi frá upphafi
-
Nýtt efni í hverjum einasta mánuði
-
Þú færð fullt af hugmyndum og lærir alla vega tækni til að breyta gömlu í nýtt.
- Þú lærir tækni til að mála falleg málverk sem þú getur verið stolt af.
-
Þú lærir að útbúa gjafir, kort og skemmtilegar pakkningar.
-
Ekki nóg með það heldur færðu ógrynnin öll af prentanlegu efni sem þú getur hlaðið niður og átt eins lengi og þú vilt.
Hér má sjá brot af því sem kennt er í klúbbnum.
Við erum að tala um allt frá málningartækni upp í snyrtivörugerð.
Hvernig virkar þetta?
Við skráningu færðu strax tölvupóst með aðgangi inná þitt svæði þar sem efnið er. Í hverjum mánuði bætist svo við nýtt efni.
Kennslu myndbönd
Um leið og þú skráir þig færðu aðgang að öllu efninu sem er í klúbbnum og svo kemur nýtt efni inn í hverjum mánuði sem þú getur skoðað eins oft og þú vilt hvenær sem þér hentar og hvaðan sem þú vilt. Þú getur skoðað þetta í tölvu eða símanum þínum og þú færð aðgang að einstaklega aðgengilegu appi sem allir elska :)
Sagan á bak við Klúbbinn
Hver er Dísa?
Ég heiti Bryndís, alltaf kölluð Dísa.
TIl fjölda ára rak ég vinsæla ferðaþjónustu rétt við Akureyri. Á þeim tíma lærði ég margt nýtt, hvað varða mat, nýtni, umhverfið og gesti.
Ég hef frá unga aldri haft gríðalegan áhuga á mat og sköpun og er bæði menntaður grafískur hönnuður og matartæknir. Ég elska að skapa, gefa gömlum hlutum nýtt líf, búa til góðan mat og bera hann fram á fallegan og frumlegan hátt og gleðja fólkið í kring um mig.
Ég fæ endalausar spurningar alla daga um hvernig ég geri hitt og þetta og að geta deilt mínum hugmyndum eða lærdómi finnst mér algerlega magnað því eitt af því skemmtilegasta sem ég geri er að læra eitthvað nýtt sjálf.
Ég hlakka mikið til að fá þig með í Klúbbinn og geta kennt þér eitthvað skemmtilegt og nýtt.
Sjáumst í Klúbbnum.